Verð : 30.000.000
Herbergi : 5
Svefnherbergi : 4
Byggingarár : 2005
Húsið skiptist þannig; Komið er inn í flísalagða forstofu, þaðan inn á gang. Frá ganginum er gengið inn í fjögur svefnherbergi og baðherbergið. Gangurinn opnast inn í stofu og eldhús, en á hinum enda hans er hurð inn í þvottahús. Þrjú svefnherbergjanna eru að bakhlið hússins, en hjónaherbergiði er til suðurs. Góðir skápar eru í þremur herbergjanna. Herbergin eru öll rúmgóð og björt. Stofa og eldhús eru í einu rými, svalahurð úr borðstofu. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur eru í eldhúsinnréttingunni. Dökkar flísar á eldhúsgólfi. Annars dökkt parket á gólfum í stofu, gangi og herbergjum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Flísar eru á þvottahúsgólfi. Þaðan er innangengt í rúmgóðan bílskúr. Húsið er fullbúið að utan. Lóð er grófjöfnuð en stendur til að þökuleggja og ganga frá innan skamms. Skipti á eign í 101 Reykjavík koma til greina.
