29.01.2012
Finna plástur, lesa sögu og kyssa mömmuna
Ein lítil saga úr daglega (lögmanns)lífinu sem sýnir hvað börn geta orðað hlutina skemmtilega:
Verið var að rannsaka viðhorf barns til kynföður og fósturföður og ræða hlutverk feðra. Barnið skilgreindi það snarlega:
"Pabbar finna plástur, lesa sögu fyrir mann á kvöldin og kyssa mömmu".
Þetta er þá mælikvarðinn sem nota skal þegar metið er hvern barn lítur á sem pabba.