Réttvísi ehf. Strandgata 19a, 735 Fjarðabyggð 476-1616 fax 476-1661 rettvisi@rettvisi.is
16.01.2012

Innheimtuaðgerðir sveitarfélags án lagaheimildar

Héraðsdómur Austurlands hefur í dag dæmt í máli sem Djúpavogshreppur höfðaði gegn bóndanum á Stórhóli í Álftafirði.  Í málinu krafði hreppurinn bóndann um greiðslu kostnaðar við búfjáreftirlit á bænum alls um 2 millj. kr. auk vaxta og kostnaðar.

Niðurstaða dómsins er athyglisverð, komist er að þeirri niðurstöðu að innheimtan eigi sér ekki stoð í lögum, þ.e.a.s. ekki sé heimilt samkvæmt lögum að leggja á þann kostnað sem hreppurinn lagði á og krafði bóndann um.  Bóndinn var því sýknaður og hreppnum gert að greiða málskostnað.

Í greinargerð Réttvísi til héraðsdóms var málsástæða um þetta orðuð þannig:  

"Skv. 4. mgr. 10. gr. laga um búfjárhald o.fl. nr. 16 frá 2002 er meginreglan sú að sveitarfélag ber kostnað af búfjáreftirliti.  [...]  Stefna byggir á því að engar forsendur séu til þess að leggja slikan kostnað á sig [...]  Á því timabili sem hér um ræðir hafa gilt tvær gjaldskrár fyrir búfjáreftirlit í Djúpavogshreppi, nr. 982 frá 2009 og áður gjaldskrá frá 20 júlí 2004.  Þær báðar gera ráð fyrir að aðeins í undantekningartilvikum falli kostnaður við búfjáreftirlit á eiganda búfjár.  Stefnda telur að að skv. þessum gjaldskrám og ákvæðum laganna um búfjárhald hafi stefnanda verið óheimilt að krefjast greiðslu fyrir þessar skoðanir sem reikningarnir lúta að."

Dóminn má sjá á vef héraðsdóms á slóðinni:  http://domstolar.is/domaleit/nanar/?ID=E201100045&Domur=5&type=1&Serial=1&Words=