Enn um afturköllun ákæru
„Ég sé ekki að ég hafi nokkra heimild til að afturkalla ákæruna“ er haft eftir ríkissaksóknara í viðtali á bls. 15 í Mogga í dag, þar sem fjallað eru um afdrif máls sem Hæstiréttur ómerkti og vísaði til nýrrar meðferðar í héraðsdómi. Í framhaldinu segir að ekki séu breyttar forsendur að baki ákærunni.
Athyglisvert er að bera þetta saman við ummæli þessa sama embættismanns í sl. viku um Landsdómsmálið. Á mbl.is á fimmtudaginn 26. er haft eftir henni að þingið geti hvenær sem er afturkallað ákæruna og hún sé ekki sammála áliti Ólafs Jóhannessonar fv. lagaprófessors um að Alþingi geti ekki afturkallað. Á vefnum er frétt Fréttablaðsins frá 27.þ.m. þar sem er haft eftir henni að engar forsendur hafi breyst í Geirs-málinu sem styðji afturköllun ákæru.
Hvernig á að skilja þetta?