Réttvísi ehf. Strandgata 19a, 735 Fjarðabyggð 476-1616 fax 476-1661 rettvisi@rettvisi.is
11.02.2012

Rafrænar kosningar

Um sl. helgi var kallað saman sérstakt auka kirkjuþing til að breyta kosningareglum þjóðkirkjunnar um biskupskjör.  Eldri reglur höfðu gert ráð fyrir rafrænni kosningu, en þegar á hólminn var kominn taldi kjörstjórn kirkjunnar það ekki örugga leið.  

Við eigum þá að vera örugg um að fá ekki íslenska prestvígða útgáfu af Robin Williams sem biskup í sumar, svo rifjuð sé upp kvikmyndin "Man of the year".

Það er mannsbragur af þeim viðbrögðum kirkjuþings að breyta þessum reglum frekar en reyna að beita þeim.  (Að vísu jafn mikið til vansa að hafa nokkurn tíma sett þessar reglur, en látum það liggja milli hluta).

Reyndin er sú að rafrænar kosningar eru ekki framkvæmanlegar með öruggum og gegnsæjum hætti.  Það er algjör forsenda lýðræðis að kosningar fari þannig fram að allir geti kynnt sér framkvæmdina og fullvissað sig um að hún sé örugg, fullvissað sig um niðurstaðan sé algerlega sú sama og kjósendurnir ákváðu í kjörklefanum.  Ef kjósendur geta ekki treyst þessu er lýðræðið í voða.  

Í fyrstu kosningum eftir bankahrunið komu eftirlitsmenn frá erlendri eftirlitssstofnun (minnir að hafi heitið ÖSE) og kynntu sér framkvæmdina.  Meginsniðurstaða þeirra var sú að íslenskur almenningur hefði mikið traust á framkvæmd kosninga.  Það traust má ekki glatast.

Áðurnefnd bíómynd er ágæt áminning um hvernig ella getur farið.  Þar tók maður sem í gríni hafði boðið sig fram til forseta Bandaríkjanna, við því embætti vegna þess að vitlausar niðurstöður komu út úr kosningatölvunum.

Nýju kosningareglurnar frá kirkjuþingi gera ráð fyrir e.k. póstkosningu.  Það fyrirkomulag er mun betra en einnig gallað.  T.d. má velta fyrir sér hvort tryggt sé að óviðkomandi komist ekki yfir kjörgögn og kjósi fyrir annan aðila.  Og eins er hér ekki tryggt að kosningarnar séu leynilegar.  

Öruggasta leiðin hefði verið sú að semja við Innanríkisráðuneytið um að þetta væri framkvæmt hjá sýslumönnum einsog utankjörfundaratkvæðagreiðsla í almennum kosningum.  Þar er allt til staðar til að gera þetta á öruggan hátt, og ekki margir á kjörskrá þannig að fyrirhöfnin væri lítil.