Réttvísi ehf. Strandgata 19a, 735 Fjarðabyggð 476-1616 fax 476-1661 rettvisi@rettvisi.is
21.02.2012

Námsskeið um umboðssvik

Í dag var áhugavert námskeið hjá Lögmannafélaginu þar sem fjallað var um auðgunarbrotið umboðssvik.  Margt fróðlegt kom fram á námskeiðinu.  Sem dæmi um lægsta stig umboðssvika var nefnt það þegar starfsmaður stelst til að nota símann á vinnustaðnum í einkasímtöl.  Það afbrot felur í sér að maður hefur aðstöðu til að framkvæma eitthvað sem skuldbindur annan aðila fjárhagslega.  Síðan spanna þessi brot alla flóruna upp í risastór efnahagsbrot einsog mikið hafa verið í umræðunni undanfarin misseri.  T.d. ef banki lánar sömu fyrirtækjasamstæðu meira en heimilt er (hámarkið er 25% af eigið fé bankans), og jafnvel gegn tryggingum sem ekki standast reglur bankans um lágmarkstryggingar.

Skólabókardæmið um umboðssvik sem sýnir vel muninn á umboði og heimild, er það ef A á bíl og gefur B skriflegt umboð til að selja hann fyrir sig.  Umboðið er skýrt og á grundvelli þess getur B selt.  Síðan eru munnleg fyrirmæli frá A um að B megi þó ekki selja bílinn á lægra verði en X kr., þau fyrirmæli köllum við heimild.  Þó B fari út fyrir heimildina þá getur hann ráðstafað bílnum.  Með því móti hefur hann gerst sekur um refsiverð umboðssvik gagnvart A.

Mjög flókið getur verið að afmarka hvað eru viðskipti og hvað eru auðgunarbrot.  Mjög mikið er til af óeðlilegum, óhagstæðum og arfavitlausum viðskiptum sem alls ekki ná því þó að vera auðgunarbrot.  Skilin þarna á milli eru flókið og áhugavert umfjöllunarefni.

Nefndur var nokkurra ára gamall dómur frá Akureyri.  Þar hafði LS leigt LT íbúð og fengið tryggingavíxil.  Eftir að leigusambandinu lauk þá notaði LS víxilinn.  Hann gætti þó ekki þess að setja fram formlegar kröfur, fá úttekt og þ.u.l. heldur einfaldlega notaði víxilinn.  LT kærði þetta til lögreglu og endaði það með því að LS var dæmdur sekur um umboðssvik.  Þannig getur í dags daglegum viðskiptum verið ástæða til að gæta að þessu lagaákvæði.