Máttur viljans - Valfærni 25. apríl, 2023

Verði þinn vilji!

   Horfa á kynningarmyndband

Máttur viljans – verði þinn vilji Netnámskeið hefst 18. apríl, 2023

Það eina sem við gerum í lífinu er að vilja eða óvilja.

Allt er orka og hreyfing og þú getur lifað lífinu viljandi, valfær eða óviljandi, óvalfær. En hvorn kostinn sem þú velur þá er ábyrgðin alltaf þín, því það að velja ekki er að velja óviljandi að vera fórnarlamb: Að ákveða að akveða ekki er ákvörðun, val.

Valdið er alltaf þitt.

Valið er alltaf þitt.

Viljinn er alltaf þinn.

Valfær eða óvalfær?

Vilji er vald. Við tengjum orðið vald gjarnan við ofbeldi og kúgun þeirra sterkari gagnvart þeim veikari – valdbeiting, yfirvald, ægivald. Þetta er notkun á orðinu sem er algerlega góð og gild, en í þessu námskeiði hefur orðið vald aðra merkingu og kærleiksríkari:

Vald er að valda eigin lífi; vald er val um hvað þú gerir í lífinu og hvernig þú velur að valda því.

Það sem þú lærir:

  • Fyrirgefningin er endurfæðing andans, upprisa.
  • Að fyrirgefa sér er forsenda þess að vilja sig umbúðalaust.
  • Að valda lífi þínu og vegferð viljandi.
  • Að ákveða af áræðni hvernig þú veitir þínu ljósi.
  • Að láta af eftirsjá og iðrun.
  • Að vera framgangandi vera ö ekki afturganga, draugur.
  • Að valdið er þitt og þú ræður hvernig þú veiti því.

Boðið er upp á beina útsendingu á lokaðri zoom síðu þar sem Guðni fer yfir efnið og svarar spurningum frá þátttakendum einu sinni í viku kl. 19:30 á þriðjudögum. Þeir sem ekki eiga kost á að mæta, geta horft á upptökuna síðar eftir eigin hentugleika.

Hugvekja, hugleiðsla og öndunaræfingar eru sunnudaga kl. 09:00.

Ábyrgð - fyrirgefning

Okkur er afar tamt að beintengja orðið ábyrgð við sekt – að eitthvað sé okkur sjálfum að kenna. Á námskeiðum mínum hvet ég þátttakendur til að taka ábyrgð á eigin tilvist (ekki axla ábyrgð og hvað þá að bera ábyrgð) því það er eini lykillinn að frelsi og velsæld – án víðtækrar sjálfsábyrgðar verður engin valfærni: varanleg velsæld.

Að taka ábyrgð á eigin lífi felur ekki í sér sekt – að taka ábyrgð er að umfaðma allt sem er, án afstöðu, viðhorfs, sakfellingar eða dóma; að skilja að það er aðeins ein tilfinning og að sú tilfinning er ást. Og þar sem ástin er verður enginn sakfelldur. Að taka ábyrgð þýðir að þú fyrirgefur þér afdráttarlaust og elskar þig af öllu hjarta.

“Ef þú hafnar sjálfum þér ertu að afneita tilverunni eins og hún leggur sig. Þessu má breyta. Í skrefi eitt vaknar þú til vitundar og í því næsta lærum við að fyrirgefa okkur ofbeldi sem þú ert að veita þér og þínum vegna ósættis við sjálfan sig. Með þjálfaða þekkingu fyrirgefur fólk sjálfu sér – getur notið augnabliksins og velur athygli í stað viðnáms. Með því verður framganga fólks líka öll miklu eðlilegri en ella; orðfæri, framganga og klæðaburður – hin opinbera sjálfsmynd okkar - og leiðin er greið.”

Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar

Hvað vilt þú? Hver er þinn vilji? Hvert er þitt val? Hvert er þitt vald?

Verði þinn vilji!

Alltaf verður þinn vilji, sama hversu veikur hann er eða hvaða tíðni þar ríkir. Ef þú lætur þig reka í gegnum lífið þá tekur við sú innbyggða sjálfstýring sem er hluti af okkur öllum – þá taka sjálfkrafa við stjórninni gömlu forritin sem við lærðum í æsku og byggjast oft á óskynsamlegum skilyrðingum og ályktunum. Forritin búa í magnaðri vél sem heitir heili, en heilinn vill helst af öllu vera mjög upptekinn og halda spennustiginu háu. Í huganum býr líka skortdýrið sem vill síst af öllu hlusta á hjartað og hvað það hefur til málanna að leggja.

Þú velur eða skortdýrið velur.

Allt er með vilja gert. Ekkert er háð viljaleysi eða tilviljunum – enda þýðir orðið tilviljun einfaldlega „að vilja til sín“. Allt er með þínum vilja gert og aðeins tvær leiðir eru færar að þeim vilja – í vitund eða ekki. Þegar þú velur hvernig næringu þú innbyrðir á hverjum degi stjórnar þú hvernig þér líður, en þegar þú velur ekki næringu í vitund þá stjórnast valið af því hvernig þér líður.


Leiðbeinandi


Gudni Gunnarsson
Gudni Gunnarsson

Guðni er fæddur árið 1954 og uppalinn í Keflavík. Hann rekur Rope Yoga Setrið á Garðatorgi, Garðabæ og GlóMotion International og starfar samhliða því við lífsráðgjöf, námskeiða- og fyrirlestrahald, þjálfun GlóMotion kennara, almenna GlóMotion þjálfun og skriftir.

Starfsferill Guðna við heilrækt spannar fjörtíu ár og er hann fyrsti einkaþjálfari og lífsráðgjafii á Íslandi. Hann stofnaði Vaxtarræktina hf. árið 1982 en hún var í senn innflutningsverslun og líkamsræktarstöð sem hafði það að markmiði að hvetja til andlegrar, huglægrar og líkamlegrar heilræktar.

Árið 1986 stofnaði Guðni tímaritið Líkamsrækt og næring og fram til ársins 1988 var hann útgefandi og aðalritstjóri þess. Á árunum 1987–1989 veitti hann forstöðu deildar innan Máttar fyrir heildræna þjálfun hugar og líkama. Máttur var hugarfóstur hóps lækna og starfsfólks í heilbrigðiskerfinu þar sem lögð var áhersla á nýja og heildræna nálgun við heilsu og líkamsþjálfun. Samhliða þessum störfum aflaði Guðni sér víðtækrar þekkingar á samspili huga og líkama í gegnum jóga, næringarfræði, náttúruleg bætiefni og líkamsþjálfun.

Guðni fluttist til Los Angeles og bjó þar og starfaði í 16 ár eða frá 1990 - 2006. Sú hugmyndafræði sem hann hefur hannað og þróað er einkum afrakstur þess tíma því þar starfaði hann við heilræna þjálfun líkama og sálar ásamt lífsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa. Samhliða vann hann að þróun og hönnun Rope Yoga kerfisins og æfingastöðvarinnar, en kerfið tengir hugrækt, líkamsrækt, næringarfræði og orkuumsýslu í eitt heilrænt velsældarkerfi.

Árið 2006 flutti Guðni heim til Íslands, stofnaði Rope Yoga Setrið og hóf að þróa Rope Yoga kerfið yfir í GlóMotion. GlóMotion býr yfir fleiri tegundum æfinga og þar er lögð aukin áhersla á næringu, hvað við nærum og á hvaða forsendum. GlóMotion námskeið hafa verið kennd í Rope Yoga Setrinu við góðar undirtektir frá árinu 2007.


Námsskrá


  Velkominn á mátt viljans - verði þinn vilji!
Fáanlegt í dagar
dagar þegar skráningu er lokið

Algengar spurningar


Hvenær hefst námskeiðið og hvenær er því lokið?
Námskeiðið hefst 18. apríl 2023 og endar þegar þér hentar! Þetta er netnám og þú ræður ferðinni - þú ræður hvenær þú ert tilbúinn að verða viljandi og valfær vera sem skilgreinir hvenær vegferð þín til velsældar hefst og hvenær þú líkur þessu ferðalagi.
Hversu lengi hef ég aðgang að námsgögnunum?
Hvernig hljómar, að eilífu? Þegar skráningu er lokið, hefur þú ótakmarkaðan aðgang að þessu námskeiði - og öllum námsgögnum sem tilheyra námskeiðinu ásamt fylgigögnum og facebooksíðu námskeiðssins.
Hvað ef mér líkar ekki námsefnið eða það hentar mér ekki?
Við viljum stuðla að velsæld þinni, ekki vansæld! Ef námskeiðið uppfyllir ekki væntingar þínar eða þarfir, hafðu þá samband við okkur innan 15 daga og við endurgreiðum þér námskeiðsgjaldið að fullu.
Hvaða gögn fylgja námskeiðinu?
Bókin Máttur Viljans í bundnu formi eða í pdf skjali myndbönd og aðrar leiðbeiningar. Opið spjall einu sinni í viku á lokuðum facebook vettvangi. Daglegir póstar til áminningar og hljóðupptökur frá Mætti viljans ásamt uppástungum um myndefni til stuðnings.
Fyrir hverja eru námskeiðið ætlað?
Fyrir alla sem vilja varanlega velæld. Fyrir alla sem eru tilbúnir að vera viljandi skaparar í vitund og SJÁ fyrir sér á markvissan og skilgreindan mát. Fyrir alla sem vilja láta af fórnarlamba eða píslarvætts hegðun. Við erum annaðhvort að skapa líf okkar viljandi í vitund eða óviljandi og það er bara þetta Ó sem aðskilur velsæld eða vansæld. Máttur viljans er tækifæri til að vera leiðandi, viljandi afl í lífinu en ekki farþegi í mótþróa. Máttur viljans kennir og hvetur þig til að vera valfær vera.
Hvernig eru námskeiðin uppbyggð?
Máttur viljans er umgjörð fyrir verkferlin og byggja þau aðalega á tveimur fyrstu skrefunum þó öll skrefin sé notuð sem umgjörð; 1. Athygli, að vakna til vitundar og losna undan oki hugans. 2. Valfærni, að fyrirgefa sér umbúðalaust og vilja þannig valdið sem okkur er gefið og endurheimta um leið orkuna sem við vorum að verja í eftirsjá og iðrun og nýta hana til góðs. 3. Tilgangur, skilgreina hvaða hlutverki maður ætlar að gegna og hvaða þjónustu við veitum, hvað við sjáum fyrir okkur. 4. Heitbinding, að lofa sér til fulls í eigið líf og skilja að heilindi er forsenda velsældar og þannig rými og verðugleiki. 5. Framganga, að opinbera sjálfsmynd sína í gjörðum vitandi að vilji er verknaður ekki von eða væl. Þú lærir að opinbera hugmyndir sem verða að veruleika. 6. Innsæi, að vera einlægt vitni í sinni tilvist ekki böðull í persónulegu einelti í eigin garð. 7. Þakklæti, að velja að telja blessanir sínar en ekki böl. Þakklæti er uppljómun, kærleikur og velsæld, öflugasta athöfn sem maður getur iðkað og er alltaf val. Þakklæti er tengingin við almættið. Ég nota myndbönd, hljóðupptökur, PDF skjöl og svo rafrænt umhverfi sem við vinnum í og fylgjumst með framgangi nemenda. Nemendur eru í virku sambandi ef þeir vilja eða geta unnið einir og sér. Einnig er samkoma í lokuðum facebook hópi einu sinni í viku þar sem nemendur geta spurt og fengið svör. Námskeiðið hefst 27. apríl og frá þeim degi fær þátttakandinn/n senda pósta daglega til áminningar og örvunar.
Er námskeiðin fyrir þá sem vilja skerpa á lífi sínu eða fyrir þá sem hafa orðið fyrir áföllum?
Fyrir alla sem vilja lifa í velsæld og eru tilbúnir að stíga inn í líf sitt á öðrum forsendum og breyta um viðhorf gagnvart sjálfum sér. Það skiptir engu máli hvar þú hefur verið bara hvert þú ert að fara og hvort þú ert tilbúinn í að vilja þig og elska. Upphafið er NÚNA. Þú ein/n hefur vald til að opna hjarta þitt og þiggja gjafir tilverunnar og hanna ferli velsældar en það verður ekki gert með sömu hegðun, hugsunum og framkomu sem komu þér á þann stað sem þú ert á í dag. Það er gott að hafa það í huga að allt sem þú veitir athygli vex og dafnar og ef þú ert að hugsa um það sem þú vilt ekki, þá ert þú að vilja það.
Hvers vegna ákvaðstu að hanna þetta námskeið?
Netið er dásamlegur vettvangur. Ég vil gefa sem flestum kost á að öðlast varanlega velsæld - þetta er svo einfalt í sjálfu sér. Að stíga út úr máttleysi og vanmætti, hætta að hafna sér og velja að stíga inn í vald sitt og stórkostleika, vera ljómandi og bjartar verur. Það eiga ekki allir heimangengt hingað til okkar í Garðabæ á Mátt viljans. Fólk býr bæði um allt land og auðvitað erlendis. Námskeiðið tekur 2. uppbyggilegar vikur og við erum einfaldlega að svara eftirspurn sem kemur víða frá því við viljum þannig þjóna sem flestum. Það eiga allir að geta unnið að sinni velsæld hvar sem þeir eru staddir.“
Telur þú að það nýtist fólki betur að læra heima hjá sér en mæta á staðinn?
Það er misjafnt, sumir þurfa og vilja umgjörðina sem skapast við að mæta í sal til okkar og fá þannig stuðning til að breyta ferlum sínum. Það er líka oft gott að vera innan um fólk sem er á sömu bylgjulengd og í samhljóm. Aðrir kjósa að vinna á skjá og líður jafnvel betur við þannig aðstæður. Þá er einnig tími og kostnaður við ferðalög og þann tíma má nýta til að læra heima. Þetta er eins misjafnt og við erum mörg en eins og við vitum er kennsla og námskeiðahald að verða stöðugt vinsælla á netinu - að læra á sínum tíma og hraða.

Byrja núna!