GlóMotion HeilRækt með Guðna - NETNÁM hægt að byrja núna!

HeilRækt þrisvar í viku í beinni útsendingu kl. 06:30 mán, mið og föstudaga

   Horfa á kynningarmyndband   Skrá mig á námskeið

GlóMotion Heilrækt

GlóMotion heilræktar námskeið sem umbreytir lífi þínu. Við notum þá mótstöðu sem hentar til að styrkja vöðva, auka snerpu, brennslu, sveigjanleika og úthald.

GlóMotion Heilrækt eru kraftmiklir tímar og þar sem við leggjum áherslu á stöðuæfingar, mótstöðuæfingar, sleppur, öndun, hugleiðslu og slökun. Kennd eru lífsviðhorf Rope Yoga sem grundvöllur að lífi í kærleika og umhyggju, velsæld.


Leiðbeinandi


Gudni Gunnarsson
Gudni Gunnarsson

Guðni er fæddur árið 1954 og uppalinn í Keflavík. Hann rekur Rope Yoga Setrið á Garðatorgi, Garðabæ og GlóMotion International og starfar samhliða því við lífsráðgjöf, námskeiða- og fyrirlestrahald, þjálfun GlóMotion kennara, almenna GlóMotion þjálfun og skriftir.



Starfsferill Guðna við heilrækt spannar fjörtíu ár og er hann fyrsti einkaþjálfari og lífsráðgjafii á Íslandi. Hann stofnaði Vaxtarræktina hf. árið 1982 en hún var í senn innflutningsverslun og líkamsræktarstöð sem hafði það að markmiði að hvetja til andlegrar, huglægrar og líkamlegrar heilræktar.



Árið 1986 stofnaði Guðni tímaritið Líkamsrækt og næring og fram til ársins 1988 var hann útgefandi og aðalritstjóri þess. Á árunum 1987–1989 veitti hann forstöðu deildar innan Máttar fyrir heildræna þjálfun hugar og líkama. Máttur var hugarfóstur hóps lækna og starfsfólks í heilbrigðiskerfinu þar sem lögð var áhersla á nýja og heildræna nálgun við heilsu og líkamsþjálfun. Samhliða þessum störfum aflaði Guðni sér víðtækrar þekkingar á samspili huga og líkama í gegnum jóga, næringarfræði, náttúruleg bætiefni og líkamsþjálfun.



Guðni fluttist til Los Angeles og bjó þar og starfaði í 16 ár eða frá 1990 - 2006. Sú hugmyndafræði sem hann hefur hannað og þróað er einkum afrakstur þess tíma því þar starfaði hann við heilræna þjálfun líkama og sálar ásamt lífsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa. Samhliða vann hann að þróun og hönnun Rope Yoga kerfisins og æfingastöðvarinnar, en kerfið tengir hugrækt, líkamsrækt, næringarfræði og orkuumsýslu í eitt heilrænt velsældarkerfi.



Árið 2006 flutti Guðni heim til Íslands, stofnaði Rope Yoga Setrið og hóf að þróa Rope Yoga kerfið yfir í GlóMotion. GlóMotion býr yfir fleiri tegundum æfinga og þar er lögð aukin áhersla á næringu, hvað við nærum og á hvaða forsendum. GlóMotion námskeið hafa verið kennd í Rope Yoga Setrinu við góðar undirtektir frá árinu 2007.


Námsskrá


  GlóMotion HeilRækt Netnám
Fáanlegt í dagar
dagar þegar skráningu er lokið

Algengar spurningar


Hvenær hefst námskeiðið og hvenær er því lokið?
Námskeiðið hefst þegar þér henntar. Bein útsending er kl. 06:30 með mætingu á lokaðri facebook síðu GlóMotion Akademíunnar sem jafnframt er tekið upp og er aðgengilegt alltaf og líkur síðan eftir samkomulagi. Þú getur verslað einn mánuð, þrjá mánuði, sex mánuði eða verið í mánaðarlegri áskrift sem er hagstæðasta tilboð okkar kr. 4900 á mán. Þú getur hinsvegar stjórnað þínum hraða og efnið er alltaf aðgengilegt og þú átt þinn aðgang og efni. Þú getur síðan niðurhalað efninu eða haft aðgang að því á meðan síðan er uppi.
Hversu lengi hef ég aðgang að námsgögnunum?
Hvernig hljómar að eilífu? Þegar skráningu er lokið hefur þú ótakmarkaðan aðgang að þessu námskeiði - og öllum námsgögnum sem tilheyra námskeiðinu.
Hvaða gögn fylgja námskeiðinu?
Skjöl í pdf formi, myndbönd, hljóðskrár og aðrar leiðbeiningar.
Fyrir hverja er GlóMotion HeilRækt?
GlóMotion Heilrækt eru kraftmiklir tímar og þar sem við leggjum meiri áherslu á stöðuæfingar, mótstöðuæfingar, sleppur, öndun og slökun. Kennd eru lífsviðhorf Rope Yoga sem grundvöllur að lífi í kærleika og umhyggju. Námskeiðið er fyrir alla sem vilja vera njóta varanlegar velældar. Fyrir alla sem eru tilbúnir að vera valfærir skaparar í vitund. Fyrir alla sem vilja láta af fórnarlamba eða píslarvætts hegðun. Við erum annaðhvort að skapa líf okkar viljandi í vitund eða óviljandi og það er bara þetta Ó sem aðskilur möguleika og Ó-möguleika. Að vera VakAndi og valfær er val, vald.

Byrja núna!