Kynning á GlóMotion heilsu- og lífsráðgjafanámi

Í þessari kennslu er kafað djúpt í inntak og gildi hugtakanna val, vilji, vald og valdhafi. Tengsl þessara orða eru skoðuð út frá nýju sjónarhorni sem varpar ljósi á ábyrgð, valfærni, ekki sem byrði eða skyldu, heldur sem vitund um eigin vilja, innri styrk og hæfileikann til að velja í vitund.

Val snýst ekki eingöngu um að taka ákvarðanir. Það felst í að vera vakandi í vitund sinni svo viljinn geti orðið skýr, markviss og skapandi afl. Þar sem vitund skortir minnka möguleikarnir á frjálsu vali og líklegra verður að einstaklingurinn bregðist við út frá gömlum venjum, skilyrðingum eða ómeðvituðum mynstrum.

„Máttugur er mættur maður.“

Þessi orð endurspegla kjarna kennslunnar: að raunverulegur máttur felst í veru. Sá sem er mættur í vitund um val sitt getur valið viðbragð af skýrleika í stað þess að vera stjórnað af sjálfvirkum viðbrögðum.

Í þessu samhengi fær hugtakið ábyrgð nýja merkingu. Ábyrgð er ekki fyrst og fremst að bera þunga skyldu heldur hæfileikinn til að svara aðstæðum í vitund og nærveru, valfærni. Hún felst í getu okkar til að velja viðbrögð af vilja fremur en að láta vana, ótta eða ómeðvitaðar hvatir ráða ferðinni. Ábyrgð verður þannig að valfærni, vitundarhæfni – getu til að velja viðbragð af skýrri innri leiðsögn.

Viljastyrkur birtist þegar einstaklingurinn vaknar til vitundar um eigið val. Þá verður mögulegt að beina athygli með markvissum hætti, taka ákvarðanir í vitund og fylgja þeim eftir af staðfestu. Viljinn verður brúin milli þess sem við sjáum, þess sem við veljum og þess sem við framkvæmum.

Kennslan byggir á bæði sálfræðilegum og taugafræðilegum skilningi á viljastyrk, athygli og ákvarðanatöku. Fjallað er um hvernig heilinn mótar venjur, hvernig athygli hefur áhrif á hegðun og hvernig markviss þjálfun getur styrkt sjálfsaga, innri einbeitingu og getu til breytinga. Með aukinni vitund eflist hæfni einstaklingsins til að stýra eigin lífi af skýrleika, sjálfstæði og valfærni.

Rík áhersla er lögð á verklega þjálfun, ígrundun og hugleiðslu. Þátttakendur kynnast aðferðum sem styrkja tengsl við innri kraft, efla sjálfstraust og auka getu til að halda jafnvægi milli staðfestu og sveigjanleika. Slík færni er undirstaða varanlegra breytinga á viðhorfum, hegðun og lífsstíl.

Að lokum er fjallað um hvernig máttur viljans mótar sjálfsmynd, styrkir sjálfstæði, innra vald og valdhæfni einstaklingsins. Skoðað er hvernig vilji getur stutt við heilbrigðari lífsstíl, aukna vellíðan og skýrari lífsstefnu. Þátttakendur öðlast hagnýt verkfæri sem nýtast til að taka ákvarðanir í vitund, rækta innri styrk og lifa í meira samræmi við eigin gildi og tilgang.

Yfirlit yfir helstu viðfangsefni

  • Inntak og merking hugtakanna val, vilji, vald og valdhafi.
  • Ábyrgð, valfærni sem hæfileikinn til að bregðast við í vitund.
  • Taugafræðilegur og sálfræðilegur grunnur viljastyrks og ákvarðanatöku.
  • Tengsl athygli, vitundar og frjáls vals.
  • Áhrif viljastyrks á sjálfsaga, venjur og persónulegan vöxt.
  • Verklegar æfingar og hugleiðsluaðferðir til að efla innri styrk og sjálfstjórn.
  • Hlutverk viljans í mótun sjálfsmyndar, valdhæfni og lífsgæða.
  • Hagnýt verkfæri til að styðja við markvissari, heilbrigðari og innihaldsríkari lífsstíl.

Ljúka og halda áfram