Setja eigin markmið byggð á tilgangi

Tilgangur, Markmið og Framganga

Tilgangur er kjölfesta vellíðanar og leiðarljós lífsins. Þegar manneskjan sér tilgang sinn skýrar öðlast hún stefnu, innblástur og aukna valfærni í eigin lífi. Í þessari námslotu munum við skoða hvernig tilgangur verður sýnilegur og hvernig hann birtist í markmiðum, ákvörðunum og daglegri framgöngu.

Í GlóMotion er tilgangur ekki markmið. Tilgangur er ljósið sem leiðir okkur áfram. Markmiðin eru hins vegar áfangar og birtingarmyndir þess ljóss í verki. Þess vegna leggjum við áherslu á að skilja ekki aðeins hvað við viljum skapa heldur einnig hvers vegna það skiptir okkur máli.

Nemendur læra að skoða eigin gildi, dyggðir og innri drifkrafta til að öðlast skýrari sýn á það sem þeir vilja leggja af mörkum til eigin lífs og samfélagsins. Þegar tilgangurinn verður skýr eykst trúverðugleiki einstaklingsins, framgangan styrkist og heimildin til að lifa eigin sannleika verður sterkari.

Við skoðum hvernig markmið geta orðið verkfæri til að styðja tilganginn fremur en að verða markmið í sjálfu sér. Áhersla er lögð á að skapa raunhæfa og nærandi umgjörð sem styður framgöngu, vöxt og stöðuga þróun.

Jafnframt verður fjallað um hvernig við getum tekist á við hindranir, efasemdir og áskoranir sem mæta á leiðinni. Nemendur læra að nýta innsýn, iðkun og reglulega endurskoðun til að halda tengingu við tilgang sinn og viðhalda eldmóði og lífskrafti.

Markmið lotunnar er að þátttakendur öðlist skýrari sýn á eigin tilgang, læri að setja sér markvissa áfanga og þrói með sér framgöngu sem styður þá framtíð sem þeir vilja skapa.


Helstu kennsluatriði

  • Tilgangur sem kjölfesta vellíðanar og leiðarljós lífsins.
  • Munurinn á tilgangi, markmiðum og framgöngu.
  • Hvernig gildi, dyggðir og innri drifkraftar móta lífsstefnu okkar.
  • Þróun valfærni, heimildar og trúverðugleika.
  • Aðferðir til að skilgreina áfanga sem styðja tilgang og framtíðarsýn.
  • Leiðir til að takast á við hindranir og efla staðfestu á vegferðinni.
  • Regluleg endurskoðun og aðlögun markmiða í takt við lífið sjálft.
Tilgangur er ljósið. Markmiðin eru vegferðin og áfangarnir. Framgangan er birting þess sem við höfum valið að lifa.

Ljúka og halda áfram