Hvernig á að vinna sjálfur með námið – iðkun og miðlun

Iðkun, Innleiðing og Miðlun

Í þessari námslotu verður lögð áhersla á mikilvægi þess að iðka það sem kennt er og innleiða fræðin í eigið líf. Raunverulegur skilningur verður ekki til með lestri einum saman heldur með lifaðri reynslu, athugun og markvissri iðkun.

Til að öðlast djúpa innsýn í heilsu- og lífsfærniráðgjöf þurfa nemendur að þróa eigin leiðir til að gera fræðin að hluta af daglegu lífi sínu. Með reglulegri iðkun dýpkar skilningurinn, vitundin eykst og hæfnin til að leiðbeina öðrum styrkist. Það sem við lifum og reynum sjálf verður alltaf trúverðugri miðlun en það sem við höfum einungis lært í bókum.

Við munum skoða hvernig hægt er að viðhalda vexti, þroska og námi til lengri tíma litið og hvernig iðkun verður að lífsmáta, hefðum fremur en tímabundnu verkefni.


Að miðla því sem við lifum

Mikilvægur þáttur í starfi heilsu- og lífsfærniráðgjafa er hæfnin til að miðla þekkingu, reynslu og innblæstri á skýran, heiðarlegan og áhrifaríkan hátt.

Í þessari lotu munum við þjálfa:

  • skýra og tjáningu í vitund,
  • djúpa hlustun,
  • nærveru í samtölum,
  • og hæfnina til að gera flókin viðfangsefni aðgengileg og skiljanleg.

Þegar við miðlum af eigin reynslu og vitund styrkjum við ekki aðeins eigin skilning heldur getum einnig haft jákvæð áhrif á líf annarra. Nemendur munu vinna saman í hópum, æfa samtöl, kynningar og leiðsögn og þróa sinn eigin stíl sem ráðgjafar og leiðbeinendur.


Líf í jafnvægi - lyfta tíðninni

Jafnvægi milli sjálfskoðunar, iðkunar og miðlunar er forsenda þess að fræðin verði lifandi afl í lífi okkar.

Við munum skoða hvernig hægt er að skipuleggja nám, iðkun og starf þannig að stöðugur vöxtur verði eðlilegur hluti af daglegu lífi. Áhersla verður lögð á markviss vinnubrögð sem efla sjálfstraust, trúverðugleika og hæfni til að lifa og miðla því sem kennt er af ástríðu.

Markmiðið er að nemendur útskrifist ekki aðeins með þekkingu heldur með lifandi reynslu, skýra rödd og þá valfærni sem þarf til að leiða sjálfa sig og aðra til aukinnar heilsu, vellíðanar og lífsgæða.


Helstu kennsluatriði

  • Mikilvægi reglulegrar iðkunar og innleiðingar fræðanna í daglegt líf.
  • Hvernig lifuð reynsla skapar trúverðugleika og dýpri skilning.
  • Þjálfun í skýrri tjáningu, djúpri hlustun og áhrifaríkri miðlun.
  • Aðferðir til að samræma sjálfskoðun, iðkun og leiðsögn.
  • Þróun persónulegrar nærveru og samskiptahæfni.
  • Uppbygging sjálfstrausts, trúverðugleika og fagmennsku í ráðgjafarhlutverkinu.
  • Áhersla á ævilangt nám, vöxt og stöðuga þróun.

Við kennum ekki það sem við vitum. Við kennum það sem við lifum.

Ljúka og halda áfram