Hvað eru sjö skrefin?

Sjö Skref GlóMotion

GlóMotion Heilsu- og Lífsfærniráðgjafanámið byggir á sjö skrefum umbreytingar sem mynda heildstæða umgjörð fyrir persónulegan þroska, aukna vellíðan og faglega ráðgjöf.

Skrefin eru:

Athygli – Valfærni – Tilgangur – Heitbinding – Framganga – Innsæi – Þakklæti

Þau eru ekki aðeins kennsluefni heldur hefðir, lifandi vegvísar sem leiða manneskjuna til dýpri skilnings á sjálfri sér, eigin möguleikum og þeirri sköpun sem felst í því að lifa af vitund.

GlóMotion snýst ekki um að verða betri útgáfa af sjálfum sér.

Það snýst um að vakna til þess sem þú ert.

Að færa athygli þína frá ótta til ljóss.

Frá ósjálfráðum viðbrögðum til valfærni.

Frá leit að tilgangi yfir í skilgreindan tilgang.

Frá þekkingu yfir í iðkun.

Frá iðkun yfir í visku.

Og frá visku yfir í þjónustu við lífið sjálft.

Það er vegferð frá fjarveru til veru, frá skorti til þakklætis og frá því að halda aftur af sér yfir í örlæti.


Vegferð umbreytingarinnar

Ferlið hefst með Athygli, hæfninni til að sjá sjálfan sig skýrar og átta sig á því hvar maður stendur í lífinu. Athyglin opnar dyrnar að vitundinni og skapar grundvöll allra breytinga.

Úr athyglinni fæðist Valfærni — hæfnin til að velja í vitund í stað þess að bregðast ósjálfrátt við. Þar uppgötvar einstaklingurinn eigið vald til að móta líf sitt og birtingu.

Þegar valfærnin styrkist verður Tilgangurinn sýnilegur. Tilgangur er ekki markmið heldur ljós. Hann gefur lífinu stefnu, merkingu og innblástur.

Næst kemur Heitbinding, þar sem einstaklingurinn velur sjálfan sig af heilindum og skuldbindur sig ekki ytri kröfum heldur eigin sannleika. Þar verður breytingin trúverðug.

Í Framgöngu tekur innri umbreyting að birtast í daglegu lífi. Ný viðhorf verða að nýjum hefðum, nýjum ákvörðunum og nýrri birtingu.

Með reynslu og iðkun dýpkar Innsæið. Einstaklingurinn lærir að hlusta á eigin innri leiðsögn og treysta þeirri visku sem býr handan hugsunarinnar.

Ferðalagið leiðir síðan til Þakklætis, sem er ekki aðeins tilfinning heldur lífsafstaða. Þakklætið tengir manneskjuna við lífið sjálft og verður uppspretta vellíðanar, friðar og lífsgæða.


Frá persónulegri umbreytingu til leiðsagnar

Í gegnum námið læra nemendur ekki aðeins að beita þessum skrefum í eigin lífi heldur einnig að leiða aðra í gegnum sama ferli.

Með verkefnum, samtölum, iðkun og reynslunámi öðlast þeir skilning á því hvernig umbreyting á sér stað og hvernig hægt er að skapa aðstæður þar sem einstaklingar geta vaknað til eigin styrkleika, tilgangs og möguleika.

Sjö skrefin verða þannig bæði persónuleg vegferð og fagleg aðferðafræði sem nýtist í ráðgjöf, leiðsögn og lífinu sjálfu.


Helstu kennsluatriði

  • Djúpur skilningur á sjö skrefum umbreytingar og velsældar.
  • Hvernig athygli og vitund skapa grundvöll breytinga.
  • Þróun valfærni, tilgangs og heitbindingar.
  • Hvernig ný viðhorf birtast í breyttri framgöngu.
  • Þjálfun í að efla innsæi og innri leiðsögn.
  • Skilningur á þakklæti sem uppsprettu vellíðanar.
  • Hagnýt beiting sjö skrefanna í ráðgjöf og leiðsögn.
  • Undirbúningur fyrir faglegt starf sem GlóMotion Heilsu- og Lífsfærniráðgjafi.


Sjö skref GlóMotion eru ekki leið að öðru lífi. Þau eru leið heim til þess lífs sem bíður eftir að fá að birtast í gegnum þig.

Ljúka og halda áfram